Víðavangshlaup ÍR fór fram sumardaginn fyrsta, þann 20. apríl í 91. sinn. Veður var gott og allar aðstæður hinar bestu. Myndaseríunni er skipt í þrennt. Fyrstu myndir eru teknar þegar um 2 km eru búnir af hlaupinu, næsta sería eru myndir teknar þegar hlauparar koma í mark og að lokum er myndasería frá verðlaunaafhendingu.
Eftirfarandi ljósmyndir tók Torfi H. Leifsson. Hægt er að kaupa ljósmyndirnar í fullkomnum gæðum, annað hvort sem JPG skrá og/eða útprentaða. Verð á JPG mynd er 480 kr en 580 kr ef einnig er keypt útprentun. Vinsamlegast hafið samband við torfi@hlaup.is.
|