Miðnæturhlaup Suzuki fer fram í 20. sinn þann 21. júní 2012
Í Miðnæturhlaupi Suzuki 2012 verður boðið upp á þrjár vegalengdir á nýrri og krefjandi braut - Hálfmaraþon (21,1 km) - Ræst kl. 21:20
- 5 kílómetra hlaup - Ræst kl. 21:50
- 10 kílómetra hlaup - Ræst kl. 22:00
Hlaupaleiðir Hlaupið hefst á Engjavegi nálægt Skautahöllinni í Laugardal og endar í trjágögunum við þvottalaugarnar í Laugardal. Að mestu er hlaupið á stígum. Smellið á kortin af leiðunum til að skoða stærri mynd.
Hálfmaraþon: Hlaupið er alla leið upp Elliðaárdalinn og framhjá svæði Fáks í Víðidal. Þaðan er farið upp að Rauðavatni og Morgunblaðshúsinu. Síðan hlaupið yfir Grafarholt og niður Grafarvoginn. Frá bryggjuhverfinu í Grafarvogi er farið inn í Laugardalinn aftur.
 Smelltu á myndina til að sjá stærra kort.
10 km: 10 km hlaupaleiðin liggur í gegnum Laugardalinn og upp að stíflunni í Elliðaárdal og til baka.
Smelltu á myndina til að sjá stærra kort.
5 km: Í 5 km hlaupinu er hlaupin skemmtileg leið í kringum Laugardalinn. Leiðin er nokkuð svipuð þeirri sem farin hefur verið undanfarin ár en breytist þó aðeins vegna nýs upphafs og endis.
 Smelltu á myndina til að sjá stærra kort.
Skráning Forskráning í Miðnæturhlaup Suzuki hefst þriðjudaginn 10.apríl. Forskráningu lýkur 19. júní á miðnætti. Skráning fer fram á www.marathon.is.
Skráningargögn verða afhent í Skautahöllinni í Laugardal á hlaupadegi frá kl. 16:00.
Flokkaskipting
Hálfmaraþon - 18 ára og yngri
- 19-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
10 km hlaup - 18 ára og yngri
- 19-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
5 km hlaup - 15 ára og yngri
- 16-18 ára
- 19-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
Verðlaun Verðlaunapeningur er veittur fyrir 1. sæti karla og kvenna í ofangreindum aldursflokkum.
Þátttökuverðlaun eru í boði fyrir þau sem velja það í skráningarferlinu.
Sérverðlaun hlaupsins eru: - Verðlaun fyrir 1.-3.sæti karla og kvenna í hálfu maraþoni, 10 km og 5 km.
- Verðlaun fyrir 1.sæti karla og kvenna í aldursflokkum í hálfu maraþoni, 10 km og 5 km.
- Útdráttarverðlaun
Tímataka Flögutímataka er í öllum þremur vegalengdum hlaupsins. Festa þarf tímatökuflöguna við skóinn svo að tíminn skráist. Engin flaga = enginn tími.
Mikilvægt er að skila tímatökuflögunni þegar komið er í mark til starfsmanna hlaupsins. Athugið að tímatökuflagan gildir eingöngu í þetta ákveðna hlaup og hefur hver þátttakandi hana til leigu. Flagan hefur verið skráð á nafn þátttakanda og getur hann fengið bakreikning ef flögu er ekki skilað til starfsmanna.
Athugið að byssutími gildir til úrslita og röðunar í sæti.
Nánari upplýsingar Á vef hlaupsins www.marathon.is
|