Haus 2013 VID2013_087
Actavis 2013
Leit
Áhugavert
Fjallvegahlaup Stefáns
Skráningar í hlaup
Hlaupapróf
Panta prógram
100km hlauparar
Samræmd vefmæling
Félag maraþonhl.
Hlaupadagbók
Netfang:
Lykilorð:
 
 
Nýskráning
Gleymt lykilorð!
 
English
Hvítt bil 5 á hæð - 3
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Stoð logo
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Dagbók
30.06.2012 - Bjartur 2012: Rathlaup á Jökuldalsheiði

Nýtt rathlaup á Jökuldalsheiði verður haldið þann 30. júní - 1. júlí.

Um er að ræða liðakeppni í þremur flokkum:

  • Fjölskyldurathlaup 4 klst. (3-5 í liði)
  • 10 klst. rathlaup (2-3 í liði)
  • 24 klst. rathlaup (2-3 í liði)

Keppnisfyrirkomulag
Einni klukkustund fyrir ræsingu fá liðin í hendur kort með ámerktum punktum. Hver punktur á kortinu stendur fyrir stað sem auðkenndur er með flaggi og þar er að finna gatara/stimpil sem liðin nota til að gata/stimpla á þar til gert liðsblað og staðfesta þannig komu sína á staðinn. Staðirnir gefa mismörg stig eftir því hversu erfitt er að finna eða komast á viðkomandi stað og sigrar það lið sem nær flestum stigum. Liðin ákveða fyrirfram hvaða leið þau ætla að fara og hvaða punkta þau ætla að sækja og gefa umsjónarmanni keppninnar þá áætlun upp. Ekki þarf að fylgja áætluninni nákvæmlega, en öryggis keppenda vegna er gott að fylgja henni sem mest. 

  • Þátttakendur í fjölskyldurathlaupi verða ræstir kl 12:00 sunnudaginn 1. júlí.
  • Keppendur í 10 klst rathlaupi verða ræstir kl 8:00 sunnudaginn 1. júlí
  • Keppendur í 24 klst rathlaupi verða ræstir kl 18:00 laugardaginn 30. júní

Fundað verður með keppendum klukkustundu áður en hvert rathlaup hefst.

Keppni hefst og lýkur við Sænautasel, og þar verður bækistöð fyrir keppendur og starfsfólk, þangað geta keppendur komið og gætt sér á kraftmikilli kjötsúpu á meðan á rathlaupinu stendur.

Keppnisgjöld

  • Fjölskyldurathlaup 4 klst. 2000 kr. á lið
  • 10 klst. rathlaup 10.000 kr. á lið
  • 24 klst. rathlaup 15.000 kr. á lið

Innifalið kjötsúpa, aðgangur að safninu í Sænautaseli og hjólabátum, gleði og gaman að keppni lokinni.

Skráning
Skráningar berist á netfangið uia@uia.is. Senda skal upplýsingar um nafn liðs, í hvaða tímalengd á að keppa, fullt nafn og kennitölur allra liðsmanna, ásamt netföngum og símanúmerum liðsfélaga.

Skráningarfrestur í 10 og 24 tíma hlaupin er til 24. júní. Í 4 klst hlaup er hægt að skrá þar til kl. 10:30 1. júlí.

Verðlaun
Allir keppendur í fjölskylduflokki fá viðurkenningu fyrir þátttökuna en glæsileg verðlaun eru veitt fyrir stigahæsta liðið í 10 og 24 klst hlaupunum.

Aðrar upplýsingar
Rathlaupið reynir á ýmsa þætti s.s. rötun, kortalestur, hreyfingu, úthald og samvinnu. En hvert lið fer yfir á sínum hraða.
Á 19. öld og fram á þá 20. byggðust upp fjölmörg býli í Jökuldalsheiði og nágrenni. Íbúar Heiðarinnar voru um 120 talsins þegar mest lét en býlin lögðust að mestu í eyði í framhaldi af Öskjugosinu 1875 og margir ábúendur fluttu vestur um haf. Flestir Íslendingar þekkja söguna um Bjart í Sumarhúsum í skáldverkinu „Sjálfstætt fólk" eftir Halldór Kiljan Laxness. Hún lýsir lífsbaráttu sjálfstæðs kotbónda á afskekktri heiði. Margir telja að fyrirmynd sögunnar sé Heiðabyggðin á Jökuldalsheiði.

Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa UÍA í síma 4711353 eða á netfangið uia@uia.is.

Björgunarsveitin Jökull sér um öryggismál keppninnar og verður með vakt á svæðinu.

Framkvæmdar- og stuðningsaðilar
Austurför, Fljótsdalshérað, UÍA, Alcoa Fjarðarál

 

Til baka
 
 
Athugasemdir
 
 
Settu inn athugasemd:













 
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Hlaupanámskeið hlaup.is 160
Hvítt bil 5 á hæð - 1
Hvítt bil 5 á hæð - 3
Könnun
Hvernig vegalengdamæli notar þú á hlaupum?
Garmin
Polar
Snjallsíma
Stika vegalengd á korti
Mæli á hjóli/bíl
Annað
Hleyp ekki með vegalengdarmæli
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
© Allur réttur áskilinn. Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi hlaup.is