Haus 2013 VID2013_087
Actavis 2013
Leit
Áhugavert
Fjallvegahlaup Stefáns
Skráningar í hlaup
Hlaupapróf
Panta prógram
100km hlauparar
Samræmd vefmæling
Félag maraþonhl.
Hlaupadagbók
Netfang:
Lykilorð:
 
 
Nýskráning
Gleymt lykilorð!
 
English
Hvítt bil 5 á hæð - 3
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Stoð logo
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Dagbók
23.06.2012 - Mt. Esja Ultra - Esja ofurhlaup

Mt. Esja Ultra ofurhlaupið verður haldið í fyrsta skiptið laugardaginn 23. júní 2012. Boðið verður upp á þrjár vegalengdir: 2, 5 eða 10 hringi upp að Steini (sjá hringleið á korti og prófíl fyrir neðan). Stysta vegalengdin er ætluð öllum í góðu úthalds- eða fjallgönguformi.  Fimm hringir eru áskorun fyrir fólk í mjög góðu formi, en 10 hringir eru ætlaðir vönum ofurhlaupurum og fjallagörpum.

Kynningarkvöld verður um hlaupið ásamt fræðslu um fjallahlaup og næringu í ofurhlaupum. Einnig verður myndbandssýning og reynslusaga. Þetta verður auglýst síðar.

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjá karla og konur í öllum vegalengdum. Einnig verða veitt verðlaun í sveitakeppnum.

Vegalengdir í boði

  • Mt. Esja Ultra II: 2 hringir (14 km og 1200 m + hækkun)
  • Mt. Esja Ultra V: 5 hringir (35 km og 3000 m + hækkun)
  • Mt. Esja Ultra Xtreme: 10 hringir (70 km og 6000 m + hækkun)

ATH fyrir þá sem hafa hug á að taka þátt í alpahlaupinu UTMB:  5 hringir geta gefið 1 punkt og 10 hringir 3 punkta í UTMB 2013 og 2014.

Staðsetning
Hlaupið verður ræst frá Esjustofu á mismunandi tímum allt eftir vegalengd: 

  • Mt. Esja Ultra II verður ræst kl 14:00
  • Mt. Esja Ultra V verður ræst kl 10:00
  • Mt. Esja Ultra Xtreme verður ræst kl 05:00 

Tímatakmörk

  • 2 hringir: 4 klst. (kl. 18:00)
  • 5 hringir: 9 klst. (kl. 19:00)
  • 10 hringir: 18 klst. (kl. 23:00)

Skráning og skráningargjald
Skráning fer fram hér á hlaup.is en einnig er hægt að senda póst á skipuleggjendur á esjaultra@gmail.com. Skráningu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 20. júní.  Hægt verður að nálgast keppnisgögn í Afreksvörum Glæsibæ 21-22. júní. Einnig skráning á staðnum.

ATH. Þeir sem hlaupa 5 og 10 hringi þurfa að skrá sig inn sérstaklega hjá keppnisstjóra við rásmarkið fyrir hlaup á milli kl. 8:30 og 9:30.

Verð

  • 2 hringir: 2.000 kr.
  • 5 hringir: 5.000 kr.
  • 10 hringir: 10.000 kr.

Hægt er að panta bol hlaupsins við skráningu á 3.900 kr.

Sveitakeppni
Hægt verður að skrá þriggja manna sveitir í öllum vegalendum. Verðlaun verða veitt fyrir besta samanlagðan tíma.

Innifalið í skráningargjaldi

  • Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum vegalengdum
  • Verðlaunapeningur fyrir alla þá sem klára innan tímamarka
  • Sérstök verðlaun fyrir þá sem klára Esja Ultra Xtreme innan tímamarka
  • Sérstök verðlaun fyrir þá sem klára Esja Ultra V innan við 6 klst.
  • Tímataka og númer
  • Vatn, orkudrykkir, gos, sælgæti og ávextir á drykkjarstöð
  • Heitar veitingar í hlaupi (gildir ekki fyrir þá sem fara 2 hringi)
  • Brautarvarsla og öryggisgæsla allan tímann

Reglur

Keppendur skuldbinda sig til að:

  • Stunda viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.
  • Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.
  • Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda engu rusli á leiðinni nema við Esjustofu.
  • Klæða sig eftir veðri og veðurspá.
  • Hafa með sér nægja næringu og vökva til að klára keppni.
  • Virða reglur um utanaðkomandi aðstoð en aðeins einn einstaklingur má aðstoða hvern keppanda hverju sinni með búnað og næringu á sérstöku svæði við Esjustofu. Öll önnur utanaðkomandi aðstoð er bönnuð nema í neyð.
  • Sýna öðrum keppendum og göngufólki tillitsemi á leiðinni.
  • Hafa keppnisnúmer sýnilegt allan tímann .
  • Skrá sig hjá starfsmanni við Stein (checkpoint) og Esjustofu í hverjum hring.
  • Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð þar til önnur viðeigandi hjálp berst
  • Keppnisstjóri ber ekki ábyrgð á hlaupurum vegna utanaðkomandi áhrifa eins og veðurs og náttúruhamfara
  • Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi er að ræða.
  • Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum
  • Keppnisstjóra er heimilt að aflýsa eða stoppa hlaupið vegna utanaðkomandi aðstæðna

Aldurstakmörk

  • 5 hringir: 16 ára
  • 10 hringir: 18 ára

Útbúnaður

Keppnisstjóri mælir sterklega með því að hver keppandi hafi eftirfarandi útbúnað til taks (skyldubúnaður fyrir keppendur í V og Xtreme)

  • Plastmál til að sækja vatn í læk og á drykkjarstöð
  • Álteppi
  • Farsíma
  • 0,5-1,0 L af vökva
  • Nægilegt magn af næringu og vökva fyrir hvern hring
  • Teygjubindi
  • Vatnsheldan jakka úr öndunarefni
  • Húfu og hanska
  • Föt til skiptanna og eftir hlaup.

Mælt er með að hafa meðferðis

  • Göngustafi
  • Drykkjarbelti og vatnspoka
  • Súrefnissokka
  • Derhúfu
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn
  • Núningsáburð og blöðruplástra

Heimilt verður að geyma aukabúnað  á sérstöku svæði við Esjustofu. Keppendur mega fá aðstoð frá einum utanaðkomandi aðila á svæðinu. Það er mikilvægt að keppendur skipuleggi næringu, útbúnað, klæðnað og aðstoð vel fyrir keppni.

Hlauparar þurfa að hafa meðferðis eigin næringu sem dugar út allt hlaupið.

Kort af hlaupaleiðinni:

Mt.-Esja-Ultra-Trail-Kort 

Þversnið af hlaupaleiðinni:

 Mt.-Esja-Ultra-Trail-Profil

 

Til baka
 
 
Athugasemdir
 
Karl G. Gíslason Karl G. Gíslason
7.5.2012 10:48:29
Væri ekki sniðugt að láta fólk vita hvað orkudrykki verður boðið uppá. Það er ekki öllum sama hvað þeir láta ofan í sig, sérstaklega ekki í svona erfiðum keppnum. þá geta þeir sem taka þátt gert viðeigandi ráðstafanir.
Karl G. Gíslason Karl G. Gíslason
7.5.2012 10:51:00
Ég gleymdi mér aðeins, að öllu öðru leyti líst mér alveg frábærlega vel á þessa keppni. Ætla að mæla með henni.
Elísabet Margeirsdóttir Elísabet Margeirsdóttir
31.5.2012 10:00:51
Það verða þrjár tegundir af drykkjum frá High5. 4:1 blanda, kolvetnadrykkur (Energy source) og ísótónískur iþróttadrykkur. Nánari upplýsingar um alla næringu sem verður í boði verða tilkynntar með góðum fyrirvara. kkv. Elísabet
Hörður Valgarðsson Hörður Valgarðsson
9.6.2012 01:09:33
er farið upp vinstra megin og niður hægra ?
Sigurður Kiernan Sigurður Kiernan
11.6.2012 12:47:35
Það verður farið upp vinstra megin og niður hægra. Það er gert til þess að það verði einstefna mest allann tímann.
 
Settu inn athugasemd:













 
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Hlaupanámskeið hlaup.is 160
Hvítt bil 5 á hæð - 1
Hvítt bil 5 á hæð - 3
Könnun
Hversu oft hleypur þú nákvæmlega vegalengdina sem æfingaáætlunin segir til um?
Alltaf
Yfirleitt
Stundum
Sjaldan
Aldrei
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
© Allur réttur áskilinn. Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi hlaup.is