Haus 2013 VID2013_087
Actavis 2013
Leit
Áhugavert
Fjallvegahlaup Stefáns
Skráningar í hlaup
Hlaupapróf
Panta prógram
100km hlauparar
Samræmd vefmæling
Félag maraþonhl.
Hlaupadagbók
Netfang:
Lykilorð:
 
 
Nýskráning
Gleymt lykilorð!
 
English
Hvítt bil 5 á hæð - 3
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Stoð logo
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Dagbók
23.06.2012 - Naflahlaupið

Naflahlaupið verður haldið laugardaginn 25. júní nk. og hefst á eftirfarandi tímum:

  • 21 km - ræst klukkan 10:00.
  • 13 km - ræst klukkan 10:30.
  • 5 km - ræst klukkan 11:00.

Naflahlaupið var fyrst haldið sumarið 2010. Nafnið er vísun til þess að um nafla alheimsins sé að ræða en á síðasta ári beindust allra augu að þessu svæði vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Naflahlaupið var viðleitni einstaklinga til að sýna fram á að þrátt fyrir allt væri öllu óhætt á þessu svæði, í Naflanum væri hreint og tært loft og góðar aðstæður til útivistar.

Vegalengdir
21 km, 13 km og 5 km. Öllum er þó velkomið að slást í hópinn hvar sem er og velja þannig þá vegalengd sem hentar hverjum og einum.

Hlaupaleið
21 km - Lagt er af stað frá Leikskólanum Örk á Hvolsvelli. Hlaupið upp hjá Sólheimum, hjá Lynghaga, Hjarðartúni, Miðtúni og Akri og svo niður hjá Nýbýlavegi. Þaðan er haldið áfram inn Fljótshlíðarveginn alla leið að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.

13 km - Hlaupið frá Leikskólanum Örk á Hvolsvelli að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.

5 km - Hlaupið er frá skógræktarstöðinni á Tumastöðum

Drykkjarstöðvar eru á leiðinni.

Sjá líka kort af leiðinni.

Skráning
Gott að skrá sig á Facebooksíðu Naflahlaupsins með því að skrá sig „attending". Facebooksíða hlaupsins er Naflahlaupið 2012.

Þátttökugjald er 1000 krónur og lagt er inn á reikning Naflahlaupsins 0182 - 05 - 60512. Kt. 260787-2929. Í athugasemdum á að vera bolastærð keppanda. Flottir vinningar eru í boði og hressing við endamarkið í Hótel Fljótshlíð.

Áheit
Eins og síðast er hægt að skora á hlaupara og heita á þá. Ágóði áheita runnu á síðasta ári í starfsemi sjúkraflutninga á Hvolsvelli en nú munu áheit renna til Unglingadeildar Dagrenningar. Hver hlaupari ber ábyrgð á að nálgast áheit sín til áskoranda og skila til framkvæmdastjóra hlaupsins sem koma þeim í réttar hendur að hlaupi loknu.

Nánari upplýsingar
Framkvæmdastjórar hlaupsins eru Jón Gísli Harðarson og Ómar Smári Jónsson.
Nánari upplýsingar veita þeir félagar í síma 864 2288 (Jón Gísli) og 848 1466 (Ómar Smári).

 

Til baka
 
 
Athugasemdir
 
 
Settu inn athugasemd:













 
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Hlaupanámskeið hlaup.is 160
Hvítt bil 5 á hæð - 1
Hvítt bil 5 á hæð - 3
Könnun
Hvernig vegalengdamæli notar þú á hlaupum?
Garmin
Polar
Snjallsíma
Stika vegalengd á korti
Mæli á hjóli/bíl
Annað
Hleyp ekki með vegalengdarmæli
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
© Allur réttur áskilinn. Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi hlaup.is