Haus 2013 VID2013_087
Actavis 2013
Leit
Áhugavert
Fjallvegahlaup Stefáns
Skráningar í hlaup
Hlaupapróf
Panta prógram
100km hlauparar
Samræmd vefmæling
Félag maraþonhl.
Hlaupadagbók
Netfang:
Lykilorð:
 
 
Nýskráning
Gleymt lykilorð!
 
English
Hvítt bil 5 á hæð - 3
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Stoð logo
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Dagbók
23.06.2012 - Brákarhlaupið

Hið árlega Brákarhlaup verður haldið laugardaginn 23. júní nk. í tengslum við Brákarhátíðina í Borgarnesi. Hlaupið er kennt við ambáttina Þorgerði Brák, fóstru Egils Skallagrímssonar, sem hljóp undan Skallagrími forðum daga ofan úr Sandvík og út á Digranes, þar sem hún hljóp út af bjarginu á sund. Skallagrímur kastaði eftir henni steini miklum og setti milli herða henni og kom hvorki upp síðan. (Egils saga, 40. kafli). Þar heitir nú Brákarsund, og stendur Landnámssetur Íslands við sundið.

Staður og tímasetning
Landnámssetrið í Borgarnesi, laugardaginn 23. júní kl. 11:00.

Hlaupaleið og vegalengdir
Hlaupið verður ræst skammt frá Landnámssetrinu og hlaupið um götur og stíga í Borgarnesi. Síðasti hluti hlaupsins fer niður aðalgötuna, nokkurn veginn í spor Brákar, að endamarki við Landnámssetrið. Boðið verður upp á tvær vegalengdir, 3 km og 10 km. Tími verður tekinn á öllum keppendum og úrslitin birt á hlaup.is. Leiðin er auðrötuð, en brautarverðir verða við þær beygjur og gatnamót þar sem helst er villuhætta.

Aldursflokkar 3 km

  • 10 ára og yngri
  • 11-14 ára
  • 15 ára og eldri

Aldursflokkar 10 km

  • 18 ára og yngri
  • 19-39 ára
  • 40 ára og eldri

Sveitakeppni
Boðið er upp á sveitakeppni sem þýðir að fjölskyldur, vinnufélagar eða íbúar í tilteknum hverfum geta myndað sveitir. Konur og karlar geta myndað sveit saman en þeir sem eru í sömu sveit verða að hlaupa sömu vegalengd. Heimilt er að skrá 3-5 einstaklinga í sveit, en samanlagður tími þriggja fyrstu gildir í sveitakeppninni. Þeir sem eru saman í sveit eru hvattir til að auðkenna sig með einhverjum hætti til að gera sveitina sýnilegri og ýta undir heilbrigða samkeppni. Hver og einn þarf að tilgreina nafn sveitar þegar hann skráir sig í hlaupið.

Skráning og keppnisgögn
Skráningar í hlaupið skulu sendar á netfangið umsb@umsb.is fyrir kl. 24 fimmtudaginn 21. júní. Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum kl. 10:00-10:45 hlaupadaginn. Þar verða keppnisnúmer jafnframt afhent og tekið á móti þátttökugjöldum (í seðlum (eða mynt)).

Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta sæti í hverjum flokki.

Þátttökugjald
Þátttökugjald er 500 kr., en ókeypis fyrir 14 ára og yngri.

Veitingar
Engar drykkjarstöðvar verða á hlaupaleiðinni, en boðið upp á drykki í marki.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar fást á umsb@umsb.is. Sjá einnig www.brakarhatid.is.

 

Til baka
 
 
Athugasemdir
 
 
Settu inn athugasemd:













 
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Hlaupanámskeið hlaup.is 160
Hvítt bil 5 á hæð - 1
Hvítt bil 5 á hæð - 3
Könnun
Hvernig vegalengdamæli notar þú á hlaupum?
Garmin
Polar
Snjallsíma
Stika vegalengd á korti
Mæli á hjóli/bíl
Annað
Hleyp ekki með vegalengdarmæli
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
© Allur réttur áskilinn. Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi hlaup.is