Haus 2013 VID2013_087
Actavis 2013
Leit
Áhugavert
Fjallvegahlaup Stefáns
Skráningar í hlaup
Hlaupapróf
Panta prógram
100km hlauparar
Samræmd vefmæling
Félag maraþonhl.
Hlaupadagbók
Netfang:
Lykilorð:
 
 
Nýskráning
Gleymt lykilorð!
 
English
Hvítt bil 5 á hæð - 3
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Stoð logo
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Dagbók
23.06.2012 - Bláskógaskokk HSK

Bláskógaskokk HSK verður haldið laugardaginn 23. júní nk. og hefst kl. 11:00. Hlaupið er 40 ára í ár, en það var fyrst haldið 2. júlí 1972.

Hlaupaleið
Hlaupið verður frá Gjábakka, austan Þingvallavatns eftir gamla Gjábakkavegi til Laugarvatns. Í 5 km frá hlaupinu er hlaupinn hringur á Laugarvatni (ný 5 km hlaupaleið).

Ein drykkjarstöð er á hlaupaleiðinni. Engin bílaumferð verður um veginn meðan á hlaupinu stendur.


Skoða Bláskógaskokkið á stærra korti 

Vegalengdir
5 km og 10 mílur (16,09 km) með tímatöku. Ein drykkjarstöð er á 10 mílna hlaupaleiðinni.

Flokkaskipting
Flokkaskipting bæði kyn: 16 ára og yngri, 17-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri. Í 5 km er keppt í flokkum 16 ára og yngri og 17 ára og eldri hjá báðum kynjum.

Skráning
Hægt er að forskrá sig hér á hlaup.is og greiða með kreditkorti. Forskráningu á hlaup.is lýkur föstudaginn 22. júní kl. 21:00. Eins er skráð á staðnum (íþróttahúsi) fyrir hlaup.

Keppendur þurfa að mæta við íþróttahúsið á Laugarvatni þar sem þeir staðfesta skráningu og fá afhent keppnisnúmer frá kl. 9:00 á keppnisdag. Ath. Keppendur verða að koma sér sjálfir á rásmark í 10 mílna hlaupinu. Í 5 km frá hlaupinu er hlaupinn hringur á Laugarvatni.

Skráningargjald er 500 kr. fyrir 16 ára og yngri og 1.500 kr. fyrir 17 ára og eldri og greiðist áður en hlaup hefst. Innifalið í skráningargjaldi er aðgangur í sundlaugina á Laugarvatni. Gegn framvísun keppnisnúmers fá keppendur aðgang í sund.

Verðlaun
Allir þátttakendur fá verðlaun. Sérverðlaun verða veitt fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í 5 km og 10 mílum. 

Verðlaunaafhending fer fram á íþróttavellinum á Laugarvatni strax eftir hlaup.

Nánari upplýsingar
Umf. Laugdæla sér um framkvæmd hlaupsins eins og undanfarin ár.
Nánari upplýsingar veita Sigurbjörn Árni Arngrímsson í síma 693-1774 og Ingvar Garðarsson í síma 482 2730 og 698 5730.

 

Til baka
 
 
Athugasemdir
 
Jóhanna Arnórsdóttir Jóhanna Arnórsdóttir
21.6.2012 23:42:52
Er ykkur alvara með að keppendur eigi að koma sér sjálfir á rásmarkið???? Maður fær á tilfinninguna að þið nennið eiginlega ekki að standa í þessu.
 
Settu inn athugasemd:













 
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Hlaupanámskeið hlaup.is 160
Hvítt bil 5 á hæð - 1
Hvítt bil 5 á hæð - 3
Könnun
Hversu oft hleypur þú nákvæmlega vegalengdina sem æfingaáætlunin segir til um?
Alltaf
Yfirleitt
Stundum
Sjaldan
Aldrei
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
© Allur réttur áskilinn. Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi hlaup.is