Almennt um hlaupið Fossvogshlaupið var haldið í fyrsta sinn sumarið 2011 og tóku 300 hlauparar þátt. Nú er blásið til leiks aftur og verður Fossvogshlaupið haldið fimmtudaginn 30. ágúst.
Tímasetning Fimmtudagur 30. ágúst kl. 19
Vegalengdir 5 og 10 km með tímatöku. Vegalengdir eru mældar og viðurkenndar af FRÍ.
Staðsetning Hlaupið verður ræst við Víkina, Traðarlandi 1 í Fossvogi. Hlaupaleiðin er hringur í Fossvogsdal; í 5 km er hlaupinn einn hringur en tveir í 10 km, sjá nánar á korti. Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir þá sem hlaupa 10 km.
Skráning Netskráning til kl. 15 á hlaupdegi 30. ágúst. Eftir það er hægt að skrá sig milli kl. 16 og 18 í Víkinni, Traðarlandi 1, 108 Reykjavík. Gögn verða afhent í Víkinni frá kl. 16 til 18:30 á hlaupdegi.
Þátttökugjald Þáttökugjald er 1.000 kr. í forskráningu til kl. 15:00 á keppnisdegi, 30. ágúst. Þátttökugjaldið er innheimt samhliða forskráningu á hlaup.com. Eftir að forskráningu lýkur hækkar gjaldið í kr. 2.000 sem greiða þarf í Víkinni milli kl. 16 og 18 á keppnisdegi. Skráningargögn verða afhent gegn framvísun kvittunar milli klukkan 12:00 og 18:30 á keppnisdegi í Víkinni, Traðarlandi 1, 108 Reykjavík.
Verðlaun Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í kvenna- og karlaflokki á báðum vegalengdum. Einnig verður fjöldi útdráttarverðlauna.
Aldursflokkar 12-18 ára, 19-39, 40-49, 50-59, 60 ára og eldri.
Veitingar Að hlaupi loknu er þátttakendum boðið upp á hressingu m.a. orkudrykki, heitt kakó, ávexti og hnallþórur.
Skipuleggjendur Almenningsíþróttadeild Víkings, netfang: almenningur@vikingur.is
|