Fáskrúðsfjarðarhlaupið var haldið í annað sinn 27. júlí síðastliðinn. Hlaupið hófst við Franska spítalann í Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð sunnanverðan og var hlaupið sem leið liggur eftir ströndinni og inn í þorpið að grunninum þar sem spítalinn var reistur árið 1904.
Vegalengdin er 19,3 km og var boðið upp á að hlaupa hana alla eða mynda hlaupasveit. Fimmtán tóku þátt í hlaupinu í ár sem er fjórum fleira en í fyrra og má því með sanni segja að þátttakan í ár hafi slegið met. Viðraði vel til hlaups þennan dag en þoka lá yfir Franska spítalanum í Hafnarnesi við upphaf hlaupsins. Hlaupið var í logni og þoku fyrstu kílómetrana sem síðan létti og þegar í mark var komið skein sól á sæla keppendur. Hægt er að skoða myndir úr hlaupinu.
Aðstandendur hlaupsins þakka aðstoðarfólki og styrktaraðilum kærlega fyrir þeirra þátt í hlaupinu en í ár voru drykkir í boði Vífilfells og veitingar að hlaupi loknu í boði Samkaups á Fáskrúðsfirði. Við þökkum hlaupurum sérstaklega vel fyrir komuna og vonum að þeir hafi haft gaman af og hlökkum til að sjá þá alla að ári ásamt fleira fólki. Fáskrúðsfjarðarhlaupið verður haldið aftur á næsta ári í tengslum við bæjarhátíðina Franska daga á Fáskrúðsfirði sem jafnan er síðustu helgina í júlí.
|