Fáskrúðsfjarðarhlaupið var haldið í þriðja sinn föstudaginn 24. júlí síðastliðinn. Með hlaupinu er vakin athygli á sögu Franska spítalans í Hafnarnesi og hugmynd um flutning og endurbyggingu hans í þorpinu á Fáskrúðsfirði þar sem hann var reistur árið 1904.
Hlaupið var ræst af frjálsíþróttakappanum Guðmundi Hallgrímssyni í blíðskaparveðri í Hafnarnesi við sunnanverðan Fáskrúðsfjörð. Hlaupið var frá Franska spítalanum 19,3 km inn í þorpið að grunninum þar sem spítalinn stóð áður. Í ár tóku 39 keppendur þátt í hlaupinu. Tuttugu og sex þátttakendur hlupu alla leið en einnig voru fimm hlaupasveitir þar sem liðsmenn skiptu hlaupaleiðinni á milli sín.
Aðal styrktaraðili hlaupsins var Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði en einnig styrktu Samkaup-Strax Fáskrúðsfirði og Vífilfell hf. hlaupið. Aðstandendur hlaupsins þakka styrktaraðilum kærlega fyrir þeirra framlag og einnig öllum þeim sem veittu aðstoð við undirbúning og framkvæmd hlaupsins.
Myndir frá hlaupinu:


|