Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður haldið laugardaginn 21. ágúst. Tímasetningar eru eftirfarandi.
Í Lækjargötu
08:40 Maraþon, hálfmaraþon og boðhlaup (maraþon) 09:30 10 km hlaup 11:45 Upphitun 12:00 Skemmtiskokk 3km 14:40 Tímatöku hætt
Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar. Reykjavíkurmaraþon áskilur sér rétt til að gera breytingar á dagskrá ef nauðsyn krefur.
Latabæjarhlaupið í Hljómskálagarðinum
Dagskrá fyrir Latabæjarhlaupið í Hljómskálagarðinum verður birt þegar nær dregur hlaupi. Reiknað er með að dagskrá hefjist á svipuðum tíma og í fyrra þ.e. um kl.12.30.
Nánari upplýsingar á vef Reykjavíkurmaraþons.
Fræðsluerindi
Fræðsluerindi á skráningahátíð Reykjavíkurmaraþons eru haldin á 3. hæð KSÍ (stúka Laugardalsvallar).
Fundarstjórn verður í höndum Gunnars Páls Jóakimssonar.
|
Tímasetning |
Fyrirlestur |
|
17:00 |
„Sársauki er tímabundinn, upplifunin er eilíf"
Fjallað verður um þátttöku í ofurhlaupum sem standa jafnvel sólarhringum saman. Hvað fær hlaupara til að takast á við slíkar þrekraunir? Hvað þarf að vera til staðar svo hlauparinn standist það andlega og líkamlega álag sem fylgir slíkum hlaupum? Eru hlaup af þessu tagi tóm leiðindi eða getur verið að þau séu áhugaverðar og skemmtilegar áskoranir?
Gunnlaugur Júlíusson |
|
17:40 |
Rathlaup
Rathlaupafélagið Hekla kynnir starfsemi félagsins, stöðu íþróttarinnar á Norðurlöndunum og væntingar til framtíðar.
Gísli Örn Bragason og Christian Peter MacLassen |
|
18:20 |
Þríþraut á Íslandi
Hvað þarf til að æfa þríþraut á Íslandi? Hvaða vegalengdir eru í boði og hvernig fara svona keppnir fram? Fjallað verður um Challenge Copenhagen keppnina sem 17 íslendingar tóku þátt í. Sú keppni samanstendur af 3,8km ísundi / 180km hjóli og 42,2km hlaupi.
Ásdís Kristjánsdóttir, Gísli Ásgeirsson, Trausti Valdimarsson og Vignir Þór Sverrisson |
|