Haus 2013 VID2013_087
Actavis 2013
Leit
Áhugavert
Fjallvegahlaup Stefáns
Skráningar í hlaup
Hlaupapróf
Panta prógram
100km hlauparar
Samræmd vefmæling
Félag maraþonhl.
Hlaupadagbók
Netfang:
Lykilorð:
 
 
Nýskráning
Gleymt lykilorð!
 
English
Hvítt bil 5 á hæð - 3
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Stoð logo
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Dagbók
30.5.2012
30.06.2012 - Öxi 2012

Öxi 2012 er göngu- og hlaupahelgi fjölskyldunnar. Hluti af henni er þríþrautarkeppni, sem haldin verður í fyrsta skipti í ár dagana 30. júní og 1. júlí á Djúpavogi. Þríþrautin sjálf fer fram laugardaginn 30. júní.

Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi: 

Föstudagur 29. júní kl. 20:00

Ferðafélag Djúpavogs verður með stutta kynningargönguferð um bæinn og næsta nágrenni.

Laugardagur 30. júní kl. 10:00

Þríþraut:
750 m sjósund - Synt af Staðareyri suður yfir Berufjörð.
13 km hjólreiðar - Inn Berufjarðardalinn og uppá Öxi.
19 km hlaup - Yfir í Fossárdal og að Eyjólfsstöðum
18 km hjólreiðar - Frá Eyjólfsstöðum á Djúpavog

Þrír aðilar geta keppt saman, þá þannig að einn syndir, einn hjólar og einn hleypur. Samanlagður tími keppenda í greinunum ræður úrslitum. Keppnisnúmer verða afhent við upphaf sundsins.

Keppendum er skylt að synda í blautbúningi og er búningsaðstaða til staðar að loknu sundi.

Athugið að nota verður sama reiðhjól á báðum vegalengdum og mun keppnisstjórn sjá um flutning.

Boðið verður upp á drykki við lok sundsins, á Merkjahrygg, við bæinn Eyjólfsstaði og við lok keppni. Keppendur fá síðan hressingu og frítt í sund eftir keppnina við íþróttahúsið á Djúpavogi.

Leiðakort

oxi2012_leidin_lítil 
Stærri mynd af leiðinni

Skráning
Keppnisgjald er 3.500 kr. og er skráning hafin á oxi2012@djupivogur.is. Innifalið í keppnisgjaldi er hressing, aðgangur að sundlaug og íþróttahúsi auk þess sem keppendur fá bol keppninnar. Keppendur þurfa að skrá sig fyrir fimmtudaginn 10. júní nk. Allar upplýsingar eru veittar á oxi2012@djupivogur.is.

Gúmmiskóaganga á vegum Ferðafélags Djúpavogs
Hefst við Íþróttahúsið á Djúpavogi kl. 18:00. Gengið verður út Vörðuna sem leið liggur með sjónum út í Hvítasand. Frá Hvítasandi með ströndinni út í Hvaley. Frá Hvaley að Sandey, skoðaður hellirinn í Sandey. Frá Sandey er haldið að flugbrautinni og að íþróttahúsinu þar sem gangan endar. Um er að ræða 2 ½ til 3ja tíma göngu. Gangan er fyrir fólk á öllum aldri.

Markmið er að sem flestir verði í gúmmískóm eins og forfeður okkar þegar þeir gættu að fé sínu sem hélt sig á þessu svæði.

Frítt er í gönguna og ekki þarf að skrá sig.

Sundlaug Djúpavogs verður opin til miðnættis, og er göngufólki boðið ókeypis í sund..

Sunnudagur, 1. júlí 2012

Tásutölt
Hefst kl. 10:00 úti á Söndum við enda flugbrautarinnar. Ræst er í hlaupið við Langhólma. Hlaupið er tásunum einum saman, "berfættur" Boðið er upp á tvær vegalengdir:

2 km Tölt frá Langhólma að Kiðhólma í fjöruborðinu og sömu leið til baka.
4 km Tölt frá Langhólma að Kiðhólma, í fjöruborðinu og sömuleið til baka. Haldið áfram í fjöruborðinu að Sandey og til baka aftur að Langhólma.

Tásutölt er fyrir alla fjölskylduna og verða verðlaun afhent fyrir fjölmennustu fjölskylduna, yngsta barnið og elsta þátttakandann. Verðlaun verða afhent í sundlaug Djúpavogs eftir göngu. Frítt er í Tásutöltið og ekki þarf að skrá sig sérstaklega.

Keppendur og aðstandendur fá frítt í sundlaug Djúpavogs á eftir.

 

Til baka
 
 
Athugasemdir
 
 
Settu inn athugasemd:













 
Hvítt bil 5 á hæð - 2
Hlaupanámskeið hlaup.is 160
Hvítt bil 5 á hæð - 1
Hvítt bil 5 á hæð - 3
Könnun
Hvernig vegalengdamæli notar þú á hlaupum?
Garmin
Polar
Snjallsíma
Stika vegalengd á korti
Mæli á hjóli/bíl
Annað
Hleyp ekki með vegalengdarmæli
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
© Allur réttur áskilinn. Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi hlaup.is