|
|
Aftur í Allar umræður spjall hóp
|
|
Stefberg
15.4.2010 00:12:07
Í ár er aragrúi af hlaupum á boðstólnum samkvæmt hlaupadagskrá 2010 sem sjá má hér á www.hlaup.is Ég hef verið að skoða nokkur hlaupamót og kemur það mér á óvart að í sumum tilfellum eru engar upplýsingar um þessi mót. Oft vantar t.d. leiðarlýsingu fyrir hlaupið sjálft, stundum finnst ekki hvar hægt er að skrá sig í viðkomandi hlaupamót ásamt öðrum þarflegum upplýsingum. En sem betur fer eru nokkur hlaup þar sem hægt er að fá góðar upplýsingar. Hjá sumum virðist metnaðurinn vera frekar lítill en hjá öðrum er hann í hæðstu skýjum! Er ekki kominn tími á að þeir sem ætla sér að halda hlaupamót hugsi betur um þennan þátt: upplýsingar um hlaupið frá a til ö, eða nær stafrófið lengra?
|
|
Torfi
19.4.2010 21:16:23
Ég kalla eftir upplýsingum um hlaupin í upphafi árs, en mismunandi er hversu fljótt upplýsingar aðrar en dagsetning skila sér.
Oft er það þannig að þeir sem halda hlaupin ná ekki að klára að stilla upp öllum atriðum sem tilheyra hlaupinu fyrr en liðið er á árið og hlaupið nálgast.
Því er það þannig að hlaupadagskráin inniheldur til að byrja með bara lista af hlaupum með dagsetningum, sem oft eru ekki heldur staðfestar. Best væri auðvitað ef hlaupahaldarar gætu gengið frá skipulagi hlaupsins í upphafi árs þannig að allt lægi fyrir þá og hægt væri að birta það.
|
|
Settu inn athugasemd:
|
|
|
|
|
|