Hjartadagshlaupið Hlaupnir verða 3 km, 5 km og 10 km með tímatöku, sjá nánari lýsingu og kort af hlaupaleið hér fyrir neðan.
Tími og staður Sunnudaginn 30. september 2007 á Hálsatorgi í Kópavogi, gegnt Bókasafni Kópavogs og Salnum. 3 km hlaup hefst kl. 10:50, en 5 og 10 km. hlaup hefst kl. 11:00
Start og mark Startað verður og komið í mark á Hálsatorgi í Kópavogi.
Tímataka og flokkaskipting Tími verður mældur í 5 og 10 km hlaupi, en klukka verður við endamark í 3 km hlaupi. Úrslit birt eftir aldursflokkum í karla- og kvennaflokki, sjá eftirfarandi lista:
- 16 ára og yngri
- 17-39 ára
- 40 ára og eldri
Úrslit Þegar úrslit liggja fyrir verður hægt að sjá þau á hjarta.is og á hlaup.is.
Viðurkenningar Allir sem ljúka hlaupi fá þátttökuverðlaunapening. Fyrsti karl og kona í 5 og 10 km hlaupi fá gjafabréf á flugferð erlendis. Einnig verða vegleg útdráttarverðlaun þar sem allir hafa jafna möguleika.
Hlaupaleiðin Startað á Hálsatorgi og komið aftur í mark á Hálsatorgi. Nánari upplýsingar um hlaupaleiðina hér að neðan.
Þjónusta, skemmtun og fróðleikur. Drykkjarstöð verður á Hálsatorgi og eftir hlaupið verður boðið upp á drykki fyrir alla þátttakendur. Þátttakendum verður einnig boðið frítt í Sundlaug Kópavogs eftir hlaup. Þennan dag verður hægt að taka þátt í Hjartahreysti, sem er þrautabraut sem sett verður upp á Hálsatorgi. Skemmtidagskrá hefst klukkan 13:00 á Hálsatorgi þar sem verðlaunaafhending fer fram fyrir 5 og 10 km hlaupið og vinningshafar í útdrætti tilkynntir, Sveppi kynnir og Hara systur skemmta. Þann 27. september kl. 18:00 verður í tilefni af Hjartadeginum fyrirlestraröð í Salnum í Kópavogi um Topp tíu listann fyrir heilbrigt hjarta.
Þátttökugjald Ekkert skráningargjald.
Skráning Forskráning er hér á hlaup.is en einnig verður hægt að skrá sig þann 27. september frá 16:00-18:00 í Salnum áður en fyrirlestraröðin um Topp tíu listann hefst. Einnig verður skránin á undan hlaupinu þann 30. september. Á hlaup.is geta hlauparar forskráð sig í hlaupið. Þetta er til mikilla þæginda fyrir hlaupara, sem þurfa þá bara að fá afhent númer þegar þeir mæta í hlaup.
Leiðarlýsing 3km
Kort af leiðinni.
Ræst er í hlaupið á Hálsatorgi í Kópavogi (torgið við hlið Salarins, Landsbankans o.fl.) Farið yfir torgið inn í Hamraborg og farið með Hamraborg inn á Álfhólsveg og honum fylgt þar til beygt er til hægri við Bröttubrekku síðan er beygt til vinstri inn á Víghólastíg og enda þeirrar götu er farið inn á göngustíg og farið upp stíginn og síðan niður til hægri eftir Lyngheiði inn á Digranesheiði til hægri og síðan beint áfram á Digranesheiði inn á Digranesveg og farið eftir honum að Blindrabókasafninu þar sem beygt er til hægri til að komast inn á Hálsatorgið þar endamarkið er á sama stað og startað er.
Leiðarlýsing 5km
Kort af leiðinni.
Ræst er í hlaupið við hlið bókasafnsins á Hálsatorgi. Farið meðfram bókasafni á göngustíg, farið yfir Borgarholtsbraut á göngubraut og farið niður með Sunnhlíð niður á stíg og beygt til hægri á stígnum við undirgögn og farið eftir stígnum út á Kársnes fram hjá höfninni inn á Bakkbraut og henni fylgt eftir þar til að beygt er til hægri við Vesturvör og síðan beygt aftur til hægri inn Hafnarbraut og síðan til vinstri upp Nesvör og síðan til hægri inn á Kársnesbraut og síðan til vinstri inn á Borgarholtsbraut og farið að svæðinu við Gerðarsafn og Salinn. Þar er beygt til vinstri yfir lítið bílaplan og farið norðan meginn við Gerðarsafn og Salinn og síðan til hægri við Salinn og inn á Hálsatorg í endamark.
Leiðarlýsing 10km
Kort af leiðinni. Ath. í 10km hlaupi eru farnir tveir 5 km hringir
Ræst er í hlaupið við hlið bókasafnsins á Hálsatorgi. Farið meðfram bókasafni á göngustíg, farið yfir Borgarholtsbraut á göngubraut og farið niður með Sunnhlíð niður á stíg og beygt til hægri á stígnum við undirgögn og farið eftir stígnum út á Kársnes fram hjá höfninni inn á Bakkbraut og henni fylgt eftir þar til að beygt er til hægri við Vesturvör og síðan beygt aftur til hægri inn Hafnarbraut og síðan til vinstri upp Nesvör og síðan til hægri inn á Kársnesbraut og síðan til vinstri inn á Borgarholtsbraut (hlaupið vinstra meginn á Borgarholtsbraut og farið að gangbrautinni yfir Borgarholtsbraut (sömu göngubraut og farið var yfir í byrjun hlaups). Sami hringur endutrtekinn. Þegar komið er til baka úr seinni hring þá farið niður á göngustíg á milli Gerðarsafns og Salar og farið út fyrir Salinn (norðan meginn) og síðan inn á Hálsatorg í endamark.
Upplýsingar Nánari upplýsingar gefur Bylgja í síma 535 1800 , tölvupóstfang bylgja@hjarta.is
Réttur til breytinga áskilinn.
|