Styrktarnámskeið fyrir hlaupara

Sjúkraþjálfun Reykjavíkur heldur námskeið fyrir hlaupara í samhæfingar-, stöðugleika-, styrktar- og liðleikaþjálfun sem sérhæfð er fyrir langhlaupara og hefur verið þróuð af Gauta Grétarssyni sjúkraþjálfara. Námskeiðin hefjast fimmtudaginn 4. janúar 2024

Hefst: 4. janúar 2024


Lýkur 23. maí 2024

Hægt er að vera 1 x í viku eða 2 x í viku. Tímar eru á mánudögum, miðvikudögum eða fimmtudögum kl. 7:30-8:30.

  • Mánudagur 7:30 - Uppselt
  • Miðvikudagur 7:30 - Uppselt
  • Fimmtudagur 7:30 - Laus sæti

Námskeiðin standa yfir í 13 vikur.

Styrktar- og liðleikaþjálfunin eykur líkamsfærni hlaupara, bætir hlaupalag og er ein leið til að koma í veg fyrir álagsmeiðsli og er því aðferð til að bæta hlaupatíma. Umsjón með námskeiðunum hafa Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari og Hildigunnur Hilmarsdóttir íþróttakennari sem er sérfræðingur í mjólkursýrumælingum og mati á líkamlegri afkastagetu.

Verð fyrir námskeiðið er 32.700 kr á önn miðað við 1 x í viku og 56.600 kr miðað við 2 x í viku. Nánari upplýsingar og skráning hjá gauti@srg.is.

Námskeiðin eru haldin í húsakynnum Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur að Fiskislóð 1 (Húsi Ellingsen), 2. hæð.

Gauti&Hiddasamanb
Gauti og Hildigunnur
Styrktar- og mjólkursýrumælingar fyrir hlaupara

Sjúkraþjálfun Reykjavíkur hefur boðið upp á mjólkursýrumælingar, kraftmælingar og hlaupagreiningar fyrir langhlaupara undanfarin ár til að þeir geti fylgst með líkamsástandi sínu og gert áætlanir um þjálfun sína. Mælingar þessar eru ein af forsendum þess að hlauparar viti hvar þeir standa og einnig mikilvæg leið til að koma í veg fyrir meiðsli sem hrjá marga hlaupara.

Einnig hafa sjúkraþjálfarar Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur meðhöndlað hundruð langhlaupara sem hafa lent í álagsmeiðslum, ofþjálfun og áverkum tengdum hlaupaþjálfun.