Hlaupasería 66°N og Hlaupahóps FH 2024 - Mars

Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km
  • Dagsetning21. mars 2024
Sjá úrslit

Hlaupasería 66°N og Hlaupahóps FH 2024 verður haldin í janúar, febrúar og mars. Hlaupin eru jafnframt stigakeppni einstaklinga.

Staðsetning og tími

Hlaupin þrjú hefjast á göngustígnum gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu í Hafnarfirði og hefjast hlaupin stundvíslega kl. 19:00 eftirfarandi daga:

  • Fimmtudaginn 25. janúar
  • Fimmtudaginn 22. febrúar
  • Fimmtudaginn 21. mars

Skráning og þátttökugjald
  • Fullorðnir (15 ára og eldri) = 1.800 kr (4.400 ef greitt er fyrir öll þrjú hlaupin í einu)
  • Börn (0-14 ára) = 1000 kr (2.000 kr ef greitt er fyrir öll þrjú hlaupin í einu)

Skráning og greiðsla fer fram á netskraning.is. Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum.

Tímataka

Allir þátttakendur þurfa að vera með rásnúmer. Rásnúmerið er með áfastri tímatökuflögu. Númerin verða afhent í íþróttahúsinu á Strandgötu á hlaupadegi milli kl.17:30 - 18:45. Þátttakendur er vinsamlegast beðnir um að virða þau tímamörk. Rásnúmerið er margnota og hægt að nota í öllum þremur hlaupunum, gætið þess að beygla ekki eða beygja flöguna.

Hraðastjórar verða í boði en þeir munu hlaupa á 20 mín, 25 mín og 30 mín.

Hlaupaleiðin

Hlaupið er frá upphafspunkti (stígur gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu), eftir göngustígnum meðfram strandlengju Hafnarfjarðar til norðurs áfram Herjólfsbraut, beygt til vinstri inn Naustahlein og þaðan aftur inn á Herjólfsbraut og til baka sömu leið.

  • Leiðin er nokkuð flöt og ákjósanleg til bætinga.
  • Partur af hlaupaleiðinni er á götu og eru þátttakendur beðnir um að taka tillit til þess og sýna varúð. Brautargæsla verður á hlaupaleiðinni og við gatnamót þar sem að lokað verður fyrir umferð.
  • 1 km, 2 km, 3 km og 4 km keilur verða staðsettar á hlaupaleið.
  • Hlaupaleiðin er mæld af löggildum mælingamönnum.
  • Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér hlaupaleiðina vel.

Hlaupasería FH og Bose ATL2016 320
Frá Hlaupaseríu FH

Salerni og fatageymsla

Salernisaðstaða er í íþróttahúsinu á Strandgötu og þar er einnig hægt að geyma fatnað. Athugið að engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðru sem skilið er eftir í íþróttahúsinu né á hlaupleiðinni.

Aldursflokkar

Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum karla og kvenna;

  • 14 ára og yngri
  • 15-29 ára
  • 30-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60 ára og eldri

Stigakeppni
  • 1.sæti gefur 15 stig
  • 2.sæti gefur 14 stig
  • 3.sæti gefur 13 stig
  • .......
  • 13.sæti gefur 3 stig
  • 14.sæti gefur 2 stig
  • 15.sæti gefur 1 stig

Samanlagður stigafjöldi í heildarúrslitum og aldursflokkum í öllum hlaupunum þremur gildir.

Séu þátttakendur jafnir að stigum eftir þrjú hlaup eru það úrslit í síðasta hlaupi (mars-hlaupi) sem skera úr um sætaröðun í stigakeppninni.

Úrslit

Öll úrslit ásamt stöðu í stigakeppninni verða birt á hlaup.is og á Facebook síðu Hlaupaseríu 66°N og Hlaupahóps FH eins fljótt og kostur er.

Verðlaun og lokahóf

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í karla og kvennaflokki óháð aldursflokki eftir hvert hlaup og fer verðlaunaafhending fram í íþróttahúsinu á Strandgötu strax að loknu hlaupi.

Verðlaunaafhending fyrir hlaupaseríuna fer svo fram á lokahófi sem haldið verður í Kaplakrika (dags. auglýst síðar).

Þar verða heildarsigurvegarar fyrir hlauparöðina í karla- og kvennaflokki verðlaunaðir fyrir samanlagðan árangur í öllum þremur hlaupunum auk þess að verðlaunað verður fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum aldursflokki karla og kvenna.

Einnig verða dregin út glæsileg útdráttarverðlaun þar sem möguleikarnir fara eftir fjölda hlaupa þátttakanda;

  • Þrjú hlaup = þrefaldar vinningslíkur
  • Tvö hlaup = tvöfaldar vinningslíkur
  • Eitt hlaup = einfaldar vinningslíkur

Frekari upplýsingar

Hægt er að fylgjast með hlaupinu á Facebook síðu hlaupsins.

Þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu í Suðurbæjarlaug (Hringbraut 77).

Fyrirvari

Keppendur taka þátt í Hlaupaseríu 66°N og Hlaupahóps FH á eigin ábyrgð. Framkvæmdaaðilar geta á engan hátt verið ábyrgir fyrir skaða sem keppendur hugsanlega verða fyrir eða valda öðrum meðan á þátttöku í hlaupinu stendur.  Með skráningu í þennan viðburð staðfestir þátttakandi skilning á þessu og samþykkir skilmála hlaupsins.