Um hlaupið

  • Vegalengdir13,5 km
  • Dagsetning1. maí 2024

Þann 1. maí n.k. verður hið árlega Launaflshlaup í samvinnu við Krabbameinsfélag Austfjarða. Hlaupið verður frá verslun Launafls að Óseyri 9 á Reyðarfirði að Sundlaug Eskifjarðar, samtals 13,5 km, sjá kort af leiðinni neðst á þessari síðu.

Hlaupið hefst kl. 11:00. Skokkarar verða ræstir kl. 10:40.

Eftir hlaup verður frítt í sundlaugina á Eskifirði og boðið upp á kaffi og kleinur.

Farandbikar verður bæði fyrir karla og konur. Verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti hjá báðum kynjum.