Laugavegsnámskeið Hlaupasamfélagsins

Laugavegsnámskeið Sigga P. og hlaup.is verður nú haldið í sextánda skiptið og heitir nú Laugavegsnámskeið Hlaupasamfélagsins. Námskeiðið nær yfir þrjá mánuði og hefst 15. apríl. Námskeiðið endar með Laugavegshlaupinu 13. júlí 2024. Það að hlaupa Laugaveginn er mikil persónuleg áskorun. Til að tryggja að hlaupið verði ánægjuleg og skemmtileg reynsla og að sem bestur árangur náist í hlaupinu án áfalla, er mjög mikilvægt að undirbúa sig vel. Nú býðst hlaupurum að taka þátt í undirbúningi fyrir Laugaveginn undir stjórn reyndra hlaupara, Sigurðar P. Sigmundssonar fyrrum Íslandsmethafa í maraþoni og margreynds Laugavegsfara, Torfa H. Leifssonar umsjónarmanns hlaup.is og Grétu Rut Bjarnadóttir.

Hefst: 15. apríl 2024


Lýkur 13. júlí 2024

Laugavegsnámskeið Sigga P. og hlaup.is verður nú haldið í sextánda skiptið og heitir nú Laugavegsnámskeið Hlaupasamfélagsins. Námskeiðið nær yfir þrjá mánuði og hefst 15. apríl. Námskeiðið endar með Laugavegshlaupinu 13. júlí 2024.

Einkaþjálfun

Árlegur fjöldi á Laugavegsnámskeiðunu hefur verið á bilinu 35-60 manns og hafa þátttakendur lokið hlaupinu á bilinu 5:00 klst til 9:00 klst. Námskeiðið hentar því fólki á öllum aldri og af mismunandi getustigum. Tekið er mið af getu hvers og eins og persónulegar áætlanir gerðar til 4-5 vikna í senn, sniðnar að markmiðum hvers hlaupara. Námskeiðið hentar líka fyrir þá sem ætla að taka þátt í öðrum utanvegahlaupum en Laugavegshlaupinu.

Allir hlauparar fá sérstaka hlaupaáætlun fyrir Laugavegshlaupið þar sem búið er að stilla hraða og tíma á alla áfangana í Laugavegshlaupinu

Tvær samæfingar eru í viku á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:30.

Hægt er að hefja æfingar strax og innan skamms verður haldinn fundur með þátttakendum þar sem farið verður yfir allt það sem snýr að því að taka þátt í Laugavegshlaupinu og skipulag æfinga.

Skráning á námskeið fyrir þátttöku í Laugavegshlaupinu 2024.

Í grunnþjálfunarundirbúningi felst eftirfarandi:

  • Persónuleg áætlun allan tímann, en til 4-5 vikna í senn, sem tekur mið af markmiðum, fyrri hlaupareynslu, meiðslum, núverandi stöðu og fleiru.
  • Farið verður sérstaklega í styrktaræfingar sem nýtast fyrir utanvegahlaup.
  • Farið verður í nokkrar sameiginlegar fjallaæfingar (Esjan, Hengillinn, Reykjadalur, Helgafell ofl.).
  • Fyrirlestur þar sem farið verður yfir alla þætti í undirbúningi, æfingarnar, útbúnað og fleira.
  • Afsláttur af ýmsum hlaupavörum.
  • Aðgangur að þjálfurunum allan tímann í tölvupósti og/eða í síma.
  • Farið yfir ýmsa þjálffræðilega þætti og frekari undirbúning á æfingum.
  • 50% afsláttur af hlaupanámskeiðum hlaup.is
  • Undirbúningsfundur þar sem farið verður yfir lokaundirbúning fyrir hlaupið.

Gjald fyrir Laugavegsnámskeið í 3 mánuði er 31.500 kr eða 10.500 kr á mánuði.

Skráningargjald og skráning í hlaup er ekki innifalið í verðinu fyrir námskeiðið. Hlauparar þurfa sjálfir að skrá sig í Laugavegshlaupið og greiða skráningargjaldið í þau sérstaklega.

Hlaupasamfélagið A1 2023 12 05 19.01.35
Siggi P, Gréta Rut og Torfi þjálfarar

Vinsamlegast hafið samband við Sigurð P. Sigmundsson, siggip@hlaup.is, sími 864-6766, Torfa H. Leifsson, torfi@hlaup.is, sími 845-1600 eða Grétu Rut Bjarnadóttir gretarut@gmail.com, ef þið hafið spurningar. Skráið ykkur með því að smella á eftirfarandi tengil:

Skráning á námskeið fyrir þátttöku í Laugavegshlaupinu 2024.

Ummæli nokkurra þeirra sem hafa sótt Laugavegsnámskeiðið í gegnum árin:

Hlaupanámskeiðið hentar hlaupurum af mismunandi getu og vel er fylgst með hvernig gengur. Markmið einstaklinga verða alltaf misjöfn og þeir félagar hafa einstakt lag á að láta missprettharða einstaklinga hlaupa saman á æfingu. Að hlaupa Laugaveginn er háleitt markmið, en algjörlega yfirstíganlegt með réttri leiðsögn. Sjálf hefði ég aldrei lagt af stað, nema undir handleiðslu Sigga og Torfa. Svei mér þá, ef ég fer ekki bara aftur í ár!

"Ég hef tvisvar hlaupið Laugaveginn og undirbjó mig í bæði skiptin með því að fara á Laugavegsnámskeið hjá Sigurði og Torfa. Námskeiðið er mjög vel útfært og frábært að fá æfingaáætlun sem sniðin er að þörfum hvers og eins. Félagsskapurinn og andlegi stuðningurinn á undirbúningstímanum var mjög góður og gerði það að verkum að árangurinn í hlaupinu og upplifunin var enn ánægjulegri en ella.  Einnig var frábært að fá tímasetta áætlunin fyrir hlaupið sjálft.  Ég mun fara á námskeiðið í þriðja sinn í ár til að undirbúa mig fyrir Laugaveginn."

"Ég skráði mig á Laugavegsnámskeiðið 2013 hjá Sigga og Torfa því mig langaði að undirbúa mig vel, líkamlega og andlega, fyrir fyrsta Laugavegshlaupið mitt. Námskeiðið reyndist framar öllum vonum, ég fékk einstaklings prógramm, samæfingar, frábæra leiðsögn og síðast en ekki síst frábæran félgasskap. Í hópnum voru einstaklingar með mismunandi markmið og væntingar en allir gátu samt sem áður fundið einhvern til að vera "samferða" á æfingum og í keppnum. Mér líkaði námskeiðið svo vel að ég skráði mig aftur 2014 og dró þá manninn minn með og við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Við ætlum að bæði að skrá okkur aftur 2015 :)